Hafðu samband í síma 517-8100 eða með því að smella hér
Leiguskilmálar Smartgeymslna ehf.
Uppsögn leigusamnings og skil á geymslu:
1. Uppsagnarfrestur
Uppsagnarfrestur leigusala og leigutaka er að lágmarki einn mánuður. Leigutími geymslueininga Smartgeymslna er í heilum mánuðum og er hver mánuður greiddur fyrirfram frá fyrsta leigudegi, t.d. ef að fyrsti leigudagur er 8. mars og uppsögn er móttekinn 20. ágúst er síðasti leigudagur 8. október.
2. Uppsögn þarf að vera skrifleg
Uppsögn af hálfu leigutaka skal tilkynna skriflega á skrifstofu leigusala, eða með tölvupósti á netfangið smartgeymslur@smartgeymslur.is Uppsögn af hálfu leigusala mun verða send á netfang hans sem ritað er á leigusamninginn.
3. Leigutaki getur seinkað því að skila geymslu
Hafi leigutaki sagt upp leigusamningi þá getur hann ákveðið að seinka síðasta leigudegi sem kom fram í uppsögninni. Slík tilkynning þarf að vera skrifleg og framlengist þá leigusamningur í heilum mánuðum. Þessi réttur um framlengingu leigusamnings er háður því að leigutaki hafi efnt önnur ákvæði samningsins.
4. Leigutaki getur ógilt uppsögn og leigt geymslu áfram
Hafi leigutaki sagt upp leigusamningi en ekki skilað geymslu, þá getur leigutaki tilkynnt um ógildingu uppsagnar og er leigusamningur þá áfram í fullu gildi.
5. Ef geymsla er ekki tæmd á síðasta skiladegi þá telst uppsögnin ógild
Uppsögn fellur úr gildi ef leigutaki hefur ekki tæmt og skilað af sér geymslu á síðasta áætlaða leigudegi skv. uppsögninni. Leigusamningurinn verður þá áfram í gildi og þarf leigutaki að tilkynna aftur skriflega uppsögn í samræmi við ákvæði um uppsagnarfrest að ofan.
6. Ef tæming geymslu er ekki tilkynnt þá ógildist uppsögn
Við skilum á geymslu skal leigutaki tilkynna leigusala með tölvupósti þegar að tæming á geymslu hefur átt sér stað og fá skriflegt svar til baka að geymslu hafi verið skilað. Ef tæming geymslu er ekki tilkynnt þá ógildist uppsögn. Eftir að geymslu hefur verið skilað þá hefur leigusali rétt til að leigja geymsluna strax til þriðja aðila og á leigutaki enga kröfu til hugsanlegra leigutekna.
Ef leigutaki vanefnir leigusamning:
7. Réttur leigusala til að banna aðgang að geymslu
Ef leigutaki stendur ekki skil á leigugreiðslum eða vanefnir samning þennan að öðru leyti getur leigusali bannað leigutaka að komast í geymsluna og getur framfylgt því banni með því að breyta læsingum.
8. Réttur leigusala til haldlagningar, förgunar og/eða sölu á munum í geymslu
Ef leigutaki stendur ekki skil á leigugreiðslum eða vanefnir leigusamning eða skilmála hans að öðru leyti er leigusala heimilt með einhliða aðgerðum og án atbeina sýslumanns að rýma geymsluna og farga þeim munum sem eru í geymslunni, eða leggja hald á þá til tryggingar á leigugreiðslum. Leigutaki ber ábyrgð á kostnaði sem hlýst af rýmingu, förgun og haldlagningu. Leggi leigusali hald á muni sem eru í geymslunni samkvæmt þessu er honum heimilt að selja þá án frekari fyrirvara. Andvirði sölunnar rennur upp í skuld leigutaka. Leigusali ber enga ábyrgð á fjárhagslegum skaða leigutaka vegna rýmingar, förgunar, haldlagningar og sölu á munum samkvæmt þessu.
9. Tilkynning leigusala um rýmingu, förgun og/eða haldlagningu
Leigusali skal tilkynna leigutaka fyrirætlan um rýmingu, förgun og/eða haldlagningu með minnst tveggja vikna fyrirvara. Fyrirvarinn telst frá sendingu tilkynningar frá leigusala. Tilkynningin mun verða send á netfang hans sem ritað er á leigusamninginn. Eftir að leigusali hefur sent frá sér tilkynningu um fyrirætlun um rýmingu hefur leigutaki 2 vikur til þess að greiða skuldir sínar gagnvart leigusala þar á meðal leigu fyrir þann tíma sem líður á milli tilkynningu og greiðslu. Ef greiðsla berst er áætlun um rýmingu hætt og leigutaka veitt aðgang að húsnæði Smartgeymslna til þess að tæma geymsluna.
10. Réttur leigusala til að halda eftir fyrirframgreiddri leigu
Leigusala er heimilt að halda eftir fyrirframgreiddri leigu og/eða greiðslutryggingu og nota andvirðið til greiðslu vanefnda.
11. Riftunarheimild leigusala
Leigusali hefur heimild til tafarlausrar riftunar leigusamnings ef hann telur að leigutaki hafi vanefnt leigusamninginn. Riftunarréttur leigusala er ríkari en framlengingarréttur leigutaka.
Almenn ákvæði:
12. Leigutaki ber ábyrgð á að tryggja muni í geymslu
Samningur þessi er húsaleigusamningur en ekki þjónustusamningur. Af því leiðir, meðal annars, að leigusali ber ekki ábyrgð á þeim munum sem eru settir í geymslu. Það er á ábyrgð leigutaka að tryggja munina ef hann svo kýs, t.d. með því að hafa samband við tryggingafélag sitt og tilkynna að innbú eða eigur séu staðsettar í geymslunni.
13. Greiðslur á leigu / endurgreiðsla greiðslutryggingar
Leiga er að jafnaði greidd með greiðsluseðlum. Komist leigusala og leigutaka saman um það að leiga skuli vera greidd með öðrum hætti skal það koma skýrt fram í leigusamning. Sé leiga greidd með greiðsluseðli eða í bankakerfi þá greiðir leigutaki allan kostnað af því , svo sem seðilgjald. Leigutaki heimilar Smartgeymslum. að að tilkynna vanskil sín og ábyrgðaraðila, sem varað hafa lengur en 40 daga til Creditinfo Lánstrausts hf., til skráningar á skrá Creditinfo yfir vanskil. Leiga er greidd fyrirfram og verður krafa stofnuð í heimabanka leigutaka með eindaga á síðasta dag hvers mánaðar fyrir mánuðinn þar á eftir.
14. Hvað má ekki geyma
Óheimilt er að geyma lifandi verur, hættuleg eða eldfim efni (t.d. sýru, eldsneyti, sprengiefni), efni sem gefa frá sér sterka lykt, efni sem rotna, efni sem þarfnast kælingar, frosts eða vatns, vélknúin ökutæki, gaskúta eða önnur efni sem eru til þess fallin að skemma geymsluna eða sameiginlegt rými eða valda truflun á starfsemi í húsnæðinu, eða skapa umtalsverða hættu á slíkum skemmdum eða truflun. Leigutaki skal framfylgja reglum brunamálayfirvalda. Leigutaki skal fara eftir öðrum þeim umgengisreglum sem leigusali kann að setja síðar.
15. Ástand geymslu við afhendingu
Leigutaki hefur skoðað geymsluna og er hún í fullkomnu lagi við upphaf leigusamnings. Leigutaki sættir sig við ástand hennar, lögun og stærð að öllu leyti. Leigutaka ber að skila geymslunni í sama ástandi og hann tók við henni. Leigusala er heimilt að halda eftir leigutrygginu komi upp skemmdir á geymslu við skoðun eftir að henni er skilað. Sú upphæð skal ekki vera hærri en kostnaður við viðgerð á skemmdri geymslu.
16. Umgengni, notkun og framleiga
Leigutaka er skylt að ganga vel og snyrtilega um húsnæðið og sameiginlegt rými. Leigutaka er óheimilt að breyta húsnæðinu og er óheimilt að nota sameiginlegt rými til annars en að komast til og frá geymslunni. Leigutaka er óheimilt að framleigja geymsluna að hluta eða í heild, og er óheimilt að framselja réttindi sín eða skyldur samkvæmt samningi þessum. Leigutaki má ekki nota geymsluna sem lögheimili eða starfstöð. Óheimilt er að nota geymsluna á annan hátt en til geymslu muna og gagna.
17. Bindandi samningur
Ef gerður er samningur með ákveðnum bindistíma er samningurinn bindandi fyrir leigutaka. Leigusali bendir hins vegar leigutökum á að hægt sé að semja um lausn undan samningi fyrr við leigusala en sá möguleiki er ekki bindandi fyrir leigusala. Leigusali getur sagt upp bindandi samning með tveggja mánaða fyrirvara og þarf leigusali þá að endurgreiða alla leigu sem greidd hefur verið fyrir ónotaðan leigutíma eftir þessa tvo mánuði. Leigusali getur þó sagt upp eða rift samningi efni leigutaki ekki alla skilmála samnings. Þegar binditími samnings er útrunninn, er slíkur samningur þó enn í gildi nema að honum sé sagt upp skriflega.
18.Tilkynningar
Leigutaka er skylt að tilkynna leigusala skriflega og með sannanlegum hætti um allar breytingar á upplýsingum um leigutaka sem fram koma í leigusamningi.
19. Heimilisfang og netfang vegna tilkynninga
Leigusali getur við sendingu tilkynninga til leigutaka reitt sig á að upplýsingar sem koma fram á undirrituðum leigusamningi séu réttar. Kvittun fyrir móttöku tilkynningar á heimilisfangi skal teljast fullnægjandi sönnun fyrir móttöku hennar þótt annar en leigutaki kvitti fyrir móttökuna. Sending tilkynningar með tölvupósti á netfang sem leigutaki hefur gefið upp á leigusamning telst fullnægjandi, þótt netfangið sé ekki virkt, enda hafi leigusali þrívegis reynt að senda tilkynningu með tölvupósti á netfangið. Að öðru leyti skal það m.a. teljast fullnægjandi sönnun fyrir sendingu tilkynningar leigusala ef símskeyti, eða tilkynning um að ábyrgðarsending (með tilkynningu) bíði á pósthúsi, eru borin út á heimilisfang leigutaka, og ef þriðji aðili, svo sem stefnuvottur eða hraðsendingarþjónusta, vottar að tilkynning hafi verið borin út á heimilisfangið. Efni tilkynningar sem leigusali hefur sent með sannanlegum hætti skal teljast vera það sem leigusali tiltekur, nema leigutaki geti sýnt fram á annað með framvísun viðkomandi tilkynningar
20. Bilanir
Leigutaki á engar kröfur á leigusala ef brunaviðvörunarkerfi, brunavarnir, aðgangsstýrikerfi, þjófavarnarkerfi, vatnslekaviðvörunarkerfi, vatnsúðakerfi, öryggismyndavélar, hreyfiskynjarar, meindýravarnir, vatnsleiðslur eða rafmagn bila eða virka ekki í samræmi við væntingar leigutaka.
21. Aðgangur að geymslu
Leigutaki hefur aðgang að geymslunni á öllum tímum sólarhrings árið um kring, enda hafi hann efnt leiguskilmála.
22. Aðgangur að geymslu sem leigutaki gefur þriðja aðila
Leigutaki getur gefið þriðja aðila/aðilum heimild til að fá aðgang að geymslunni, t.d maka. Slík heimild þarf að vera skrifleg, t.d. með tölvupósti frá uppgefnu tölvupóstfangi sem tilgreind er í samningi. Einnig getur leigutaki gefið slíka heimild með símtali, ef hringt er úr eða í símanúmer sem gefið er upp í samningi. Leigusali ber enga ábyrgð á fjárhagslegum skaða leigutaka vegna aðgangs þriðja aðila að geymslu leigutaka.
23. Trúnaður
Leigusali skal gæta trúnaðar um leigutaka og þá muni sem hann geymir í geymslunni. Leigutaki skal gæta trúnaðar um það sem hann verður áskynja við heimsóknir í húsnæðið um starfsemi og öryggisgæslu í húsnæðinu, m.a. hvaða muni aðrir leigutakar leigusala geyma íhúsnæðinu. Leigutaki skal sjá til þess að þeir aðilar sem hann veitir aðgang að geymslunni á sínum vegum gæti einnig sama trúnaðar. Leigusali má veita lögregluyfirvöldum upplýsingar um leigutaka og aðgang að geymslu, ef beiðni berst frá lögregluyfirvöldum, án undangenginnar tilkynningar til leigutaka.
24. Eftirlitsmyndavélar og vatnsúðakerfi
Eftirlitsmyndavélar eru í og við húsnæði Smartgeymslna ehf. Leigutaki er meðvitaður og samþykkur að heimsóknir séu myndaðar og vistaðar stafrænt. Sé vatnsúðari í geymslu leigutaka, þá skuldbindur leigutaki sig til þess láta allt svæði í geymslunni sem er allt að 50cm neðan við vatnsúðarann vera autt. Smartgeymslur ehf., fylgja lögum persónuverndar þegar kemur að vistun og eyðingu gagna.
25. Greiðsla skv. greiðsluseðlum er staðfesting á framlengingu
Leigutakar sem gera bindandi samninga til sex eða tólf mánaða njóta aflsáttar frá almennu leiguverði gegn staðgreiðslu. Þegar binditíma lýkur þá fær leigutaki sendan nýjan greiðsluseðil fyrir jafn mörgum leigumánuðum og fyrri binditími kvað á um, nema leigutaki hafi sérstaklega óskað eftir öðru. Þegar nýi greiðsluseðillinn hefur verið greiddur er aftur kominn á bindandi samningur fyrir jafnmarga leigumánuði fram í tímann og fyrr.
26. Verðtrygging
Leiguverð er verðtryggt miðað við byggingarvísitölu. Leigusala er heimilt að fella verðtryggingu einhliða úr gildi. Ef verðtrygging verður felld úr gildi, þá er leigusala heimilt að breyta leiguverði einhliða með fyrirvara sem er jafnlangur uppsagnarfresti leigutaka, eða mánuður hið skemmsta. Þó er leigusala óheimilt að breyta verðlagningu á binditíma samnings.
27. Breytingar
Breytingar og viðbætur við samning þennan skulu gerðar skriflega af báðum aðilum. Gildandi skilmálar eru aðgengilegir á slóðinni: https://www.smartgeymslur.is/leiguskilmálar
28. Ágreiningur
Ef ágreiningur kemur upp um túlkun eða framkvæmd leigusamnings eða skilmála þessa skulu aðilar leggja sig alla fram við að leysa þann ágreining með samkomulagi. Náist ekki samkomulag skal reka dómsmál vegna ágreiningsins fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Skilmálar þessir gilda frá 28. október 2024